11. febrúar 2025

Moodup er núna hluti af Skyggni

Moodup er komið með nýtt heimili. Skyggnir, nýtt eignarhaldsfélag í upplýsingatækni, hefur keypt allt hlutafé félagsins. Kaupin eru hugsuð til að styðja við áframhaldandi vöxt okkar undir þeirra regnhlíf. Þar munum við starfa við hlið annarra framsækinna hugbúnaðarfyrirtækja eins og til dæmis Helix, Syndis og Datalab.

Skyggnir Efri röð: Björgólfur G. Guðbjörnsson, forstöðumaður Origo Products, Halla Árnadóttir, vöru- og teymisstjóri mannauðs- og launalausna Origo, Stefán Jökull Stefánsson, stjórnamaður Moodup, Herdís Helga Arnalds, stjórnarmaður Moodup Neðri röð: Björn Brynjúlfur Björnsson, stofnandi og stjórnarformaður Moodup, Davíð Tómas Tómasson, framkvæmdastjóri Moodup, Ari Daníelson, forstjóri Origo

Öll njóta þessi fyrirtæki góðs af stuðningi Skyggnis sem og góðu samstarfi við Origo, sem er stærsta fyrirtækið innan raða Skyggnis. Nýir eigendur munu gera okkur kleift að fjárfesta enn frekar í betrumbótum og framþróun á þjónustunni okkar með áframhaldandi vöxt fyrirtækisins að leiðarljósi.

Fyrsta spurning þín er líklega hvaða áhrif kaupin muni hafa á stjórnendur og starfsfólk sem notar Moodup. Í stuttu máli verða áhrifin engin til skamms tíma. Moodup verður áfram rekið sem sjálfstætt fyrirtæki með óbreytta sýn og stefnu. Við viljum alltaf vera í sókn í okkar störfum og nýr samastaður hjá jafn öflugum aðila og Skyggni er happafengur fyrir okkur.

Til lengri tíma litið marka þessi kaup upphaf frekara samstarfs á milli mannauðslausna Origo: Kjarna, sem styður við allt mannauðsferlið og launavinnslu, frá ráðningu til starfsloka. Rúnu, sem tryggir að launastig fyrirtækja, sem er jafnan stærsti kostnaðarliður fyrirtækja, sé sanngjarnt og rétt, og Moodup, sem eykur starfsánægju til að búa til betri og afkastameiri vinnustað. Með því að tengja þessar lausnir enn frekar teljum við að saman getum við myndað eitt öflugasta mannauðslausnaframboð á Norðurlöndum.

Við munum auðvitað halda áfram að bjóða upp á tengingar við önnur launa- og mannauðskerfi eins og til dæmis H3 og Orra. Stjórnendur og starfsfólk munu því ekki upplifa neina breytingu þar.

Sem hluti af kaupferlinu gekkst Moodup undir ítarlegar úttektir á gagnaöryggi og persónuvernd af hálfu Skyggnis og ráðgjafa þess. Við erum stolt af því að hafa staðist þessar úttektir, sem staðfestir þá miklu áherslu sem við höfum lagt á öryggi og persónuvernd frá stofnun félagsins. Innan Skyggnis starfa sérfræðingar í fremstu röð á þessu sviði, og með stuðningi þeirra munum við tryggja að allri gagnavinnslu sé áfram sinnt í samræmi við ströngustu kröfur.

Á þessum tímamótum erum við því bæði stolt af árangrinum sem við höfum nú þegar náð og horfum spennt til nýs kafla og spennandi framtíðar innan raða Skyggnis.

Ef þú hefur einhverjar spurningar út í breytinguna, ekki hika við að svara mér hér. david@moodup.is.

Með kveðju,
Davíð Tómas Tómasson
framkvæmdastjóri Moodup